Jæja ætli við strákarnir verðum ekki
að deila þessari helgi með lesendum HK-88. Eins og flestir á
Íslandi vita núna voru Írskir dagar haldnir á Akranesi um síðast
liðna helgi. Í tilefni á því að Bjössi var í fríi þá helgi
ákváðum við strákarnir að skella okkur í geggjaða útileigu og
djamma úr okkur augun.......... 
En allt kom fyrir ekki og Bjössu bakarí
sem var loksins í fríi var með pípandi allveg frá miðvikudeginum 4.
júlí. fram að næsta laugardag :@. Við skulum skoða hvernig helgin
var þá hjá okkur þremur: Gulli, Sammi og Bjössi
Föstudagur 6.
Júlí
Dagurinn byrjar náttlega á því að ég og
Sammi förum í vinnu en Bjössi auðvitað ekki. Við ákváðum þá
fljótlega upp úr hádegi að við myndum ekki fara í dag heldur myndum
við bara skella okkur á Laugardeginum og ætluðum bara að fá okkur
pizzu hjá Bjössa í staðinn. Við mættum til Bjössa um 5 leitið og ég
og Sammi byrjum auðvitað strax á því að sötra. Það gerist nú ekki
mikið þangað til við vorum búnir að éta en þá loksins byrjar
ballið. Bjössi ákvað að vera edrú útaf mallanum og það þýddi það
bara að við Sammi gátum bara drukkið meira. En Bjössi skemmti sér
ekki þetta kvöld, það var ekki nó með það að hann var með 2 fulla
gaura með sér heldur var þetta heima hjá honum og munaði all mörgum
sinnum að Sammi hellti niður. Þetta var þó ekki það eina sem Bjössi
greiið lennti í en svona fyrsta hálftímann alltaf þegar hann ætlaði
að segja sögur fannst Samma þær alltaf svo leiðinlegar að hann
greip frammí og byrjaði að tala um eikkað algjört shit!
En þetta
kvöld var alls ekki búið.... eftir að Bjössi var kominn í enn verra
skap byrjaði hann að vera ennþá leiðinlegri og leiðinlegri
L og
máttum við aldrei gera neitt þar til við ákváðum að starta HK-88
síðunni aftur og urðum ég og Sammi geðveikt sáttir. Á þessum
tímapunkti kom besta setning þessa kvölds fram.....
Sammi:
Bjössi ef maður er í svona bloggsíðu þá fær maður kellingar
sko!!!!!
Bjössi:
Hver segir að ég vilji kellingar???
Gulli og Sammi:

whaaaaaaaat??
Þar sem ég og Sammi vorum í svona góðu
skapi voruði það auðvitað við sem skrifuðum þessi frábæru blogg
hérna fyrir neðan sem örugglega enginn maður skilur neitt
í.
Við vorum þó með hjálpar mann með okkur
sem var ekki bjössi því hann var í svo vöndu skapi en hann Bjarni
kokkur var mættur til að skutlast.
Eftir þennan tíma hjá Bjössa fór ég að
sjálfsögðu í bæinn en Sammi og Bjössi að sofa. Bærinn var ekkert
sérstakur en fór ég og Gulli Siggi í pool og síðann í bæinn og heim
fljótlega eftir það.
Laugardagur 8.
Júlí
Eftir föstudag kemur að sjálfsögðu
laugardagur og þessi laugardagur þýddi auðvitað það að við
strákarnir vorum á leiðinni á skagann .... JEEEE!!!
Ég vaknaði nú við það að Fannar frændi
hringir og segist vera að fara á skagann og spyr hvort ég vilji
ekki koma með. Ég náttlega svaraði játandi enda vorum við
strákarnir að fara og kallinn var kominn með gistingu og
alleesss.
Ég hitti þá Bjössa og Samma fljótlega
eftir hádegið og voru þeir ekki svakalega mikið á því að fara, ég
náði þó að tala þá til og varð Sammi æstari en
andskotinn.
Eftir smá rúnt förum við heim til mín og
kom þar önnur gullinn setning!
Gulli:
Mamma eigum við tjalddýnu?
Mamma hans
Gulla: uuuu jááá hvað ætlaru að gera við
hana???
Gulli: Ég
þarf að nota hana erum að fara í útileigu......
Mamma hans
Gulla: Okeyyyy .... ??? núna eða?
Gulli:
Jámmm sjáumst!
Jæja þá var ég kominn í bílinn og good
to go!!! En nei nei allt í einu segji ég og Bjössi ... æji við
nennum ekki að fara og Sammi ætlaði að missa sig!!!
Sammi:
Eruði fkn aular við erum búnir að tala um þetta alla vikuna
það er ekkert hægt að hætta bara við!!!!!
Gulli og Bjössi: Jæja 2
á móti 1 sorrýýý Sammi
Sammi: Ég
hata ykkur!
Jæja þá var allavega það ákveðið við
vorum ekki að fara á skagann..... en það átti ekki eftir að skipta
máli þó svo að Sammi hafi vælt um það allt kvöldið 
Við ákváðum bara að panta aðra pizzu og
væri það ekki frásögu færandi nema að Sammi komst á sjens..... já
við pizzu dömuna í símanum.... hún var víst með eikkerja sæta rödd

Sammi: Já
hæ... hérna ég ætla að fá eina veislu!
Daman: Já
með hverju?
Sammi:
(ohhh fokk brandarinn ónýtur) uuuu með pepp,svepp,baicon og
hakkki.
Daman: Já
oki það gera 2500 kr
Sammi: Ha?
2 og 5 fyrir eina pizzu?
Daman: Já
það er svo mikið á henni?
Sammi: Já
oki hafðu það þá bara baicon og hakk og komdu síðan í party til
okkar... Game í það?
Og ekki kom meira fram í
samtalinu L
Eftir að við vorum loksins búnir að
panta þessa pizzu ákváðum við að fylla ískápinn af bjór og hefja
drykkju. Svona leit ískápurinn út 

Það besta er að faxe-inn er Subway bjór því
hann er þaðan getið látið Samm og Bjössa segja ykkur frá því
og
að sjálfsögðu var þetta ekki allur bjórinn... þetta passaði bara
svona vel þarna fyrir
Þessi dagur var nú aðeins rólegri að
hálfu mín og Samma og kíkti MaggiMagg við og hressti aldeilis í
mannskapnum. Maggi náttlega edrú og þeir eru alltaf pirraðir.... já
það er nú bara þannig.
Gulli:
Maggi þú skutlar okkur bara er það ekki?
Maggi: Já
sko NÚNA ÞÁ!!!
Gulli, Sammi og
Bjössi: OK????
Hann Maggi er alltaf að drífa sig og
hefur aldrei tíma fyrir neitt þannig er það nú bara.
Við héldum allavega á pool stofuna og
auðvitað stútuðum við nokkrum staupum þar. Við stoppuðum þó stutt
og fór ég á Nordica að hlaða símann minn og sagði ég strákunum bara
að bíða úti. Ég var valla búinn að vera í 10 min þá koma Sammi og
Bjössi inn og tala bara ensku... afhverju gera þeir það??? Ekki
spurja mig en allt í einu breyttist Sammi í eikkað icemodel!!!
Talandi um algjöra heimsku... Hann byrjaði að trufla viðskipta vini
og var hennt út L
Við röltuðum þá í skeifuna í pool þar og
ætlaði Sammi að berja Bjössa á leiðinni en þorði það síðann ekki

(skiljanlega) Bjarni sótti okkur þaðan og ætlaði ég og Bjarni
í bæinn en Bjössi og Sammi til Bjössa. Þegar heim til Bjössa var
komið spottuðum við massa party hliðina og Bjössa og að sjálfsögðu
bailaði ég á bænum og við slógumst allir í hópinn..... nema reyndar
Bjarni. Við skulum ekkert fara nánar í það partý en er ég viss um
að við 3 höfum aðeins náð að draga meðalaldurinn niður sem var
kannski fyrir um 45 ára
Það gerðist nú ekkert mikið á
Sunnudaginn nema það að Samma tókst að spila heilan hálfleik í
fótbolta.... Gott hjá honum ... því ekki hefði ég getað
það
Ég vil benda fólki á að fylgjast vel með
á morgun því þá koma myndir frá helgini sem munu skýra hluti betur
út
En nó komið í bili allavega
Gulli
kveður